UM HÁTÍÐINA


Hátíðin var fyrst haldin í júlí 2025 og er óhagnaðardrifinn menningarviðburður. Tilgangurinn er að skapa stuð og stemningu sem tosar ekki of mikið í budduna.

Við trúum því að menning ætti að vera öllum aðgengileg og vinnum við hart að því að halda miðaverði í lágmarki.

Hátíðin dregur nafn sitt af Kveldúlfi, fyrirtæki sem rak verksmiðjuna árum áður. Síldarverksmiðjan var um sinn sú elsta í heiminum, stofnuð árið 1937.

 

TEYMIÐ

Barinn Leyni á Akureyri rekur hátíðina undir listrænni verkefnastjórn Söru Bjarnason.

Netfang: herrakveldulfur@gmail.com