UPPLÝSINGAR

STAÐSETNING

Hjalteyri liggur mitt á milli Akureyrar og Dalvíkur. Tuttugu mínútna keyrsla er á milli.

 

TJALDSVÆÐI

Sko.. það er ekki eiginlegt tjaldsvæði á Hjalteyri.

EN! Það MÁ koma fyrir tjaldi eða öðru til að sofa í (t.d. hjólhýsi og fellihýsi) þar sem er pláss. Á kortinu fyrir neðan má sjá staðsetningar.

Athugið ekki verður hægt að tengja rafmagn en á svæðinu eru klósett, vaskar og sturta.

Vinsamlegast virðið einkalóðir.

Ef plássið er af skornum skammti er hægt að koma sér fyrir á Hauganesi og Akureyri, til dæmis. Rúta mun fara á milli Hjalteyrar og Akureyrar. Hér má bóka miða í rútuna.

 

MATUR

Á staðnum er hinn frábæri veitingastaður Eyri. Við mælum með að bóka borð með góðum fyrirvara.

https://www.eyrirestaurant.is

Á staðnum verða einnig matarvagnar og íslensk kjötsúpa.